27.2.- 01.3.2026

❋ Svalandi hleðsluhelgi

Hleðsla, ró og gleði fyrir flottar konur eins og þig!

Register

Svalandi hleðsluhelgi er fyrir þig sem ert í krefjandi starfi eða verkefnum og hefur þörf fyrir smá pásu og hleðslu.

Helgi þar sem þú getur hægt á, hlaðið batteríin og aukið vellíðan þína til frambúðar. Lært að róa drifkerfið, örva sefkerfið og fundið leiðir til að tækla streituna.

Helgin í hnotskurn

  • Verum svalar - búum til rými til að tækla streituna

  • Svölutékktökum stöðuna á vellíðan í starfi

  • Hagnýt verkfæri til að auka vellíðan, fókus og starfsgleði

  • Tónheilun og slökun

  • Hreyfing og náttúruupplifun

  • Ljúffengur grænmetis/vegan matur

  • Símalaus sameiginleg rými og boð um rafræna hvíld

  • Tengslamyndun og dýrmæt samvera

  • Svo verður að vera gaman! 

Hentar helgin þér?

Helgin er algerlega fyrir þig ef þú:

  • ert í krefjandi störfum/verkefnum

  • finnst þú þurfa smá pásu og hleðslu

  • vilt hlúa að eigin vellíðan, jafnvægi og starfsorku til lengri tíma

Tilvalið fyrir vinkonur og/eða samstarfskonur sem vilja njóta og byggja sig upp saman.

Hafðu í huga að við erum að bjóða uppbyggjandi vinnustofur og aðstæður en ekki meðferð.

Þú ferð sterkari heim - tekur með þér:

  • Verkfæri og leiðir til að höndla betur streitu s.s.

    • Streitustigann

    • Streituvarnir sem virka

    • Leiðir til að örva sefkerfið og róa drifkerfið

  • Aukna vitund um líðan í starfi, stöðu og stefnu.

  • Ró og vellíðan

Símalaus rými

Á Svalandi helgi sköpum við rými þar sem þú getur stigið út úr stöðugu áreiti hversdagsins.

  • Sameiginleg rými eru án síma og tölvu

  • Hægt er að leggja símanum alveg ef þú kýst

  • Mælum með því að skilja tölvurnar eftir heima

Tími og skipulag

  • 27. febrúar - 1. mars 

  • Húsið opnar kl 17:00 á föstudeginum og lokar upp úr hádegi á sunnudegi

  • Takmarkað pláss – aðeins 20 konur

  • Tæplega þriggja tíma akstur frá Reykjavík

  • Tæplega tveggja tíma akstur frá Akureyri

  • Strætóferðir sem hægt er að nýta sér

    • Í boði að sækja þær sem koma með strætó á stoppistöð.

Eina sem þú þarft að huga að er að koma með þægileg föt, góð og hlý útiföt, gönguskó, teppi, sundbol og góða skapið.

Dagskrá

Föstudagur - Lendum í helginni að hætti Svalra, léttur kvöldverður, tónheilun og slökun.

Laugardagur - Morgunhreyfing, vinnustofur þar sem við tökum stöðuna á líðan okkar í starfi, vinnum með streitu og vellíðan. Horfum fram á við og finnum okkar styrk og stefnu. Náttúruupplifun, tónheilun og slökun.

Sunnudagur - Kjörnum og varðveitum hleðsluna til frambúðar.

Allt er þetta svo kryddað með ljúffengum hollum mat og huggulegri samveru.

Gestgjafar

Gestgjafar helgarinnar erum við Líney og Ingibjörg, sem stöndum að Svölum og látum nú drauma rætast með því að koma upp þessari skemmtilegu og nærandi kvennahelgi.

Við brennum fyrir vellíðan í vinnu, lýðheilsu, leiðtogafærni og starfsþróun og höfum um árabil unnið með fólki og fyrirtækjum að því að styrkja vellíðan í starfi.

Mottóið okkar er einfalt og skýrt: Vellíðan er virði!

Með okkur verða þau Ásta Karen og Gabriel Gold sem hafa ástríðu fyrir líkamlegri og andlegri heilsu. Ásta Karen elskar að elda góðan og næringarríkan mat og hefur reynslu af að elda fyrir viðburði. Gabriel er lærður tónheilari og tónskáld frá San Francisco sem hefur haldið fjölda tónheilunarviðburða.

Þau munu bjóða upp á bragðgóðar, heilsusamlegar máltíðir ásamt tónheilun sem styður djúpa slökun og endurnæringu.

Staðsetning

 

Við verðum í Flóðvangi, hlýlegu og huggulegu veiðihúsi við Vatnsdalshóla á Norðurlandi. Þar eru kjöraðstæður til að stíga út úr hraðanum og vera í núinu.

  • Hlýlegt og kósý rými sem henta vel fyrir vinnustofur, slökun og samveru

  • 10 tveggja manna herbergi með uppbúnum rúmum og baði

  • Sauna til slökunar og endurhleðslu

  • Fallegar gönguleiðir við allra hæfi

  • Náttúrufegurð, kyrrð og ró

Vellíðan er virði!

Verð

  • Verð 115.000 kr. á mann í tveggja manna herbergi - uppbúin rúm og handklæði.

  • Snemmskráningarverð 99.000 kr. á mann ef skráð fyrir miðnætti 13. febrúar.

  • Síðasti skráningardagur er fyrir miðnætti 20. febrúar.

Innifalið: Vinnustofur með reyndum sérfræðingum, allur matur, hressing, uppbúin tveggja manna herbergi með baði og handklæðum ásamt tónheilun.

Hugsanlega má athuga með styrk frá fyrirtæki til þátttöku sem hluta af heilsueflingu eða starfsþróun.

Afsláttarverð til 13. febrúar!

Register