Svalar hafa brennandi áhuga á aukinni vellíðan á vinnustöðum og búa yfir þekkingu og reynslu á því sviði.
Svalar eru þær Ingibjörg Loftsdóttir og Líney Árnadóttir. Saman mynda þær faglega sterkt teymi og leggja upp úr því að bjóða upp á hressa og skemmtilega fræðslu og ráðgjöf.
Ingibjörg Loftsdóttir
Ingibjörg er með EMPH gráðu í Stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá HR, MSc gráðu í Heilbrigðisvísindum frá HA og BSc gráðu í Sjúkraþjálfun frá HÍ. Hún hefur lokið námi í Stjórnenda markþjálfun frá HR og markþjálfunar námi hjá Profectus. Ingibjörg hefur verið að þróa hæfni sína í góðum stjórnunarháttum og öllu því sem getur stuðlað að vellíðan í vinnu á annan áratug. Hún starfaði sem stjórnandi hjá VIRK 2012-2023 og stýrði þar m.a. öllu forvarnarstarfi. Fyrir utan árin hjá VIRK hefur Ingibjörg verið sjálfstætt starfandi sem verkefnisstjóri og ráðgjafi frá árinu 2010 og á árum áður sem sjúkraþjálfari hér á landi og í BNA. Ingibjörg er varaformaður Stjórnvísi og formaður faghóps um heilsueflandi vinnuumhverfi. Ingibjörg hefur skipulagt og stýrt fjölda viðburða í gegnum tíðina. Einnig hefur hún haldið fjölmarga fyrirlestra bæði hér á landi og erlendis.
Líney Árnadóttir
Líney Árnadóttir er náms- og starfsráðgjafi með BA í ensku og viðskiptafræðum ásamt uppeldis- og menntunarfræðum. Hún hefur áralanga reynslu af kennslu og stjórnun. Fyrst sem kennari og aðstoðarskólastjóri og síðan sem ráðgjafi og forstöðumaður hjá Vinnumálastofnun á Norðurlandi vestra á árunum 1998-2013. Þá starfaði hún sem sérfræðingur hjá STARFI 2013-2015 og hjá VIRK 2015-2023 við þróun og útfærslu þjónustu við atvinnuleitendur og forvarnir. Líney hefur góða reynslu af skipulagi námskeiða og ráðgjöf við einstaklinga og starfsmannahópa. Hún sinnti sveitarstjórnarstörfum um árabil og hefur þróað og haldið fjölda námskeiða fyrir fullorðna ásamt því að hanna rafrænt efni í starfsþróun sem hlotið hefur viðurkenningu. Þá hefur hún undanfarin ár komið á framfæri efni til forvarna gegn streitu.

